Skilmálar

Skilmálar vefverslunar:
Vefverslunin Plútó.is er rekin af Þorn ehf, kennitala 410688-1669, VSK númer: 10888. Símanúmer hjá Plútó.is er 840-3276 og tölvupóstfang er pluto@pluto.is.
Plútó.is er eingöngu vefverslun og ekki er hægt að koma og sækja vörur eins og er.

Öll ákvæði skilmálanna hér að neðan ber að túlka í samræmi við íslensk lög.Komi upp ágreiningur milli aðila verður slíkur ágreiningur einungis leystur fyrir varnarþingi félagsins, Héraðsdómi Reykjavíkur.

Afgreiðsla pantana:
Pantanir eru afgreiddar næsta virka dag eftir pöntun, stundum fyrr. Þetta á ekki við um sérpantanir. Allar pantanir eru sendar með Íslandspósti og gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Plútó.is ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á því tjóni sem kann að verða í flutningi eða týndum sendingum. Ef að vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að að hún er send frá Plútó.is til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda.

Sé varan ekki til verður haft samband við kaupanda og tilkynnt um áætlaðan afhendingartíma vörunnar eða varan endurgreidd ef þess er óskað. Allar pantanir eru eins og áður sagði sendar með Íslandspósti og eru þrír valmöguleikar fyrir viðskiptavini: Heim upp að dyrum, í Póstbox eða sent á pósthús Póstsins. Innheimt er fyrir sendingarkostnað við staðfestingu á vörukaupum. Sendingarkostnaður er fastur 750 kr. per sendingu fyrir pantanir undir 15.000 kr.
Frí heimsending ef verslað er fyrir 15.000 kr. eða meira* (undantekningar geta verið rúmmálsfrekar og/eða þungar vörur, eða ef um sérstök tilboð er að ræða, sem er þá kynnt nánar í vörulýsingu).

Skilafrestur og endurgreiðsla:
Kaupanda er veittur 14 daga til að hætta við kaup í vefverslun að því tilskildu að varan sé ónotuð, henni skilað í góðu lagi í óuppteknum upprunalegum umbúðum. Ekki er hægt að skila vöru ef búið er að rjúfa innsigli á pakkningu. Skila verður inn kvittun fyrir vörukaupum þegar vöru er skilað og endurgreiðir Plútó.is vörukaup ef ofangreind skilyrði hafa verið uppfyllt og eftir að varan er móttekin. Kaupandi greiðir sjálfur flutningskostnað fyrir vöru sem er skipt/skilað. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar, nema viðkomandi vara sé á útsölu eða á sértilboði við vöruskil. Þá er miðað við verð vörunnar þann dag sem henni er skilað.

Ef einhverjar spurningar vakna þessu tengdar, vinsamlegast hafið þá samband við Plútó.is í síma 8403276 eða með tölvupósti til pluto@pluto.is.

Sé vara gölluð áskilum við okkur þann rétt að kanna hvort hægt sé að bæta eða laga vöruna. Ef ekki er hægt að bæta eða laga umrædda vöru getur viðskiptavinur óskað eftir inneign eða endurgreiðslu.

Verð:
Vinsamlegast athugið að verð á netinu getur breyst án fyrirvara og áskilur Plútó.is sér rétt til að hætta við pöntun ef t.d. verð vörunnar er rangt skráð í vefverslun eða varan hættir í sölu. Öll verð í vefversluninni eru með 24% virðisauka og allir reikningar eru gefnir út með VSK. Sendingakostnaður bætist síðan við áður en greiðsla fer fram.

Trúnaður:
Plútó.is heitir kaupanda fullum trúnaði varðandi allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhendar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.

Greiðsluleiðir:
Í vefverslun Plútó.is er hægt að greiða með greiðslukortum í gegnum greiðslugátt hjá Borgun. Viðskiptavinir færast sjálfkrafa yfir á öruggt svæði hjá Borgun, þar sem gengið er frá greiðslunni. Um leið og pöntunin er staðfest og fær viðskiptavinur staðfestingu í tölvupósti. Engar kortaupplýsingar eru geymdar hjá Plútó.is.